Akureyri

Ein með öllu hafin á Akureyri – tjaldsvæði þétt setin

Föstudagurinn á Einni með öllu og Íslensku sumarleikunum fór vel fram og margmenni hefur lagt leið sína til Akureyrar um verslunarmannahelgina.  Kirkjutröppuhlaupið fór fram með góðum undirtektum, sól gladdi mannskapinn fram á kvöld. Hátíðardagskrá í miðbænum vakti mikla lukku þar sem Dúndúrfréttir, Marína og Mikael, Hamrabandið, Gréta Salóme, Kristín Tómasar og Anton skemmtu fólki.

Laugardagurinn er ávalt stór á hátíðinni og þar má nefna viðburði eins og Mömmur og möffins, Barnadagskrá Greifans, Þríþraut og Hátíðardagskrá kvöldsins þar sem Birnir og Flóni stíga á stokk ásamt fleirum.

Allar upplýsingar um dagskrá helgarinnar má finna á www.einmedollu.is. Tjaldsvæði á og við Akureyri eru þétt setin en þó er ennþá pláss fyrir þá sem vilja leggja leið sína norður.

 

Aðsend fréttatilkynning. Ljósmyndir tók Hilmar Friðjónsson.