Endurnýja þarf barnarennibraut í vaðlaug Sundlaugar Dalvíkur
Barnarennibrautin í vaðlaug Sundlaugar Dalvíkur er talin vera ónýt og þurfi að fjarlægja. Rennibrautin er 8 ára gömul og er komin á endurnýjun.
Byggðarráð Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt að setja 1,9 milljónir í verkefnið.
