Enginn með covid í Dalvíkurbyggð
Covid staðan í Dalvíkurbyggð hefur lagast mikið undanfarnar vikur. Í dag þá er enginn með covid í Dalvíkurbyggð og aðeins einn í sóttkví í póstnúmeri 621. Á öllu Norðurlandi eru aðeins 13 með covid og 58 í sóttkví. Flest smitin sem eru í gangi á Norðurlandi eru á Akureyri. Fjögur ný smit greindust þar um helgina sem teygjast m.a. inn í Giljaskóla.

