dalvíkurbyggð

Fá ekki rekstrarleyfi fyrir gistingu á Karlsrauðatorgi 11 á Dalvík

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt að hafna umsókn um rekstrarleyfi gistingar fyrir húsnæðið Karlsrauðatorgi 11 á Dalvík. Fyrir lág neikvæð umsögn skipulagsfulltrúa þar sem fasteignin er skráð sem einbýlishús í fasteignaskrá og er fyrirhuguð starfsemi innan svæðis sem skilgreint er sem íbúðarsvæði. Fyrirhuguð starfsemi samræmist ekki fyrirliggjandi skipulagi og skipulagsskilmálum svæðisins.