Fimmti sigurleikur Dalvíkur í röð
Dalvík/Reynir mætti KFG í Garðabænum í 12. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla. KFG gat með sigri komist í 2. sæti deildarinnar og D/R gat komist í 3. sæti.
D/R byrjaði leikinn af krafti og skoruðu strax á 8. mínútu með marki frá Þorvaldi Daða Jónssyni. Hans annað mark í deildinni í sumar.
D/R komst í 0-2 á 17. mínútu þegar Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði. Hans fjórða mark í deildinni í sumar. Staðan var 0-2 í hálfleik fyrir D/R.
Heimamenn gerðu fjórar skiptingar í síðari hálfleik. D/R gerðu einnig þrjár skiptingar þegar tæplega 10 mínútur voru eftir af leiknum.
KFG minnkaði muninn í 1-2 á 85. mínútu og settu smá spennu í leikinn síðustu mínúturnar.
Vörn D/R hélt út og unnu hér fimmta sigur sinn í röð í deildinni og eru komnir í 3. sætið með 22 stig, eins og KFA í 2. sæti. Mikil barátta er núna um 2. sæti deildarinnar og þéttur pakki frá 5. sæti.
