Fimmtudagsmótaröð Víkurkaupa hafin
Fimmtudagsmótaröð Víkurkaupa í golfi er 12 móta 9 holu stigakeppni hjá Golfklúbbinum Hamar Dalvík. Mótið fór fram 12. júní síðastliðinn á Arnarholtsvelli og voru 14 kylfingar frá GHD skráðir til leiks. Skráningargjaldið er 500 kr. á hvert mót og geta utanfélagsmenn skráð sig en greiða þá 5000 kr. vallargjald.
Fjórir kylfingar náðu 18 punktum á þessu móti. Í 1. sæti var Linus Andersson. Sigurður Ásgeirsson var í 2. sæti og Kristbjörg Anna Hauksdóttir í 3. sæti.

