Akureyri

Gokart fyrir 10 ára og eldri á Akureyri

Á Akureyri er að finna 560 metra langa og krefjandi Gokart braut. Svæðið er á Hlíðarfjallsvegi 11-15 og er opið virka daga frá kl. 15-18 og um helgar frá kl. 13-19.  Svæðið er opið fram í september og kosta 10 mínútur í brautinni 6000 kr. 20 mínútur kosta 9000 kr.  og 2×15 mínútur kosta 13.000 kr. Þetta er tilvalin afþreying fyrir alla fjölskylduna.

Brautin er staðfest fyrir ofan Akureyri og er um 5 mínútna akstur frá miðbænum.  Brautin er með beinni tímatöku og geta bílarnir náð allt að 70 km hraða.

Allir ökumenn fá keppnisgalla, hjálm og fara í öryggisfræðslu hjá reyndum akstursíþróttamönnum áður en akstur hefst.

Hægt er að taka á móti einstaklingum og minni hópum allt að 20 manns, og fer verð eftir tímalengd. Einnig er boðið upp á viðburði fyrir stærri hópa, allt að 70 manns. Þá er sett upp kappakstur með riðlum, F1-starti og verðlaunaafhendingu—fyrirkomulag sem hefur notið mikilla vinsælda meðal skólahópa, vinahópa og fyrirtækja.

Á staðnum er aðstaða með grilli, sólpalli og sal sem rúmar allt að 50 manns í sæti (án borðbúnaðar) og fylgir salurinn leigunni.

Í sumar eru einnig námskeið í boði fyrir unglinga og er skráning á Abler. Þá er hægt að bóka tíma og kaupa gjafabréf á Noona.

Verð 2025:
10 mín 6.000 kr á mann
20 mín 9.000 kr á mann
2×15 mín 13.000 kr á mann

 

Staðsetning:
Hlíðarfjallsvegur 11-15
600 Akureyri
Netfang: gokartaey@gmail.com
FB: gokartak