Gul viðvörun á Norðurlandi í dag
Gul veðurviðvörun tekur gildi klukkan 15:00 á Norðurlandi eystra í dag og kl. 18:00 á Norðurlandi vestra.
Veðurspá Norðurland eystra: Norðan 13-18 m/s með snjókomu og skafrenning. Búast má við lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum til fjalla. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Tilkynning frá Vegagerðinni:
Vegagerðin vill vekja athygli á gulum viðvörunum frá Veðurstofu Íslands fyrir norðan, norð-austan, austur og norð-austanvert landið í fyrramálið og fram eftir degi. Spáð er norðan hríðarveðri, með slæmu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum. Vegfarendur eru beðnir um að kynna sér færð og veður áður en lagt er af stað á milli landshluta. Akið varlega.