Hátt í 400 manns á skíðum á Dalvík í dag
Það voru hátt í 400 gestir á skíðasvæðinu á Dalvík í dag þrátt fyrir erfitt veður á köflum. Það tókst að halda svæðinu opnu, en í Fjallabyggð var t.d. lokað á báðum svæðunum í dag vegna vinds.
Það var 80’s þema í Böggvisstaðafjalli í dag og verðlaun fyrir besta gallan.
Á morgun, laugardaginn 30. mars, kl. 11:00 er páskaeggjaleit og svo heitt kakó í boði skíðafélagsins klukkan 14:00.
