Íbúafundur í Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð hefur boðað til íbúafundar um framtíðarhlutverk Gamla skóla, fimmtudaginn 28. febrúar kl.17:00. Fundurinn verður haldinn í hátíðarsal Dalvíkurskóla. Fyrir fundinn, kl. 16:00-17:00 verður opið hús í Gamla skóla og gefst þá tækifæri til að kynna sér húsnæðið og ástand þess.