Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar í Bergi
Kjöri á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar 2018 verður lýst við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Bergi fimmtudaginn 17. janúar 2019 kl. 17:00.
Dagskrá
- 17:00 Gestir boðnir velkomnir með kaffi og kósýheitum
- 17:10 Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum á Tröllaskaga
- 17:15 Fulltrúi íþrótta- og æskulýðsráðs veitir viðurkenningar úr Afreks – og styrktarsjóði Dalvíkurbyggðar
- 17:35 Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum á Tröllaskaga
- 17:45 Heiðursviðukenning íþrótta- og æskulýðsráðs afhent
- 17:55 Fulltrúi íþrótta- og æskulýðsráðs lýsir kjöri Íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2018
- 18:30 Athöfn lokið
Allir velkomnir.
Heimild: dalvikurbyggd.is