JE Vélaverkstæði og bátasmiðja til sölu á Siglufirði
JE Vélaverkstæði hefur verið auglýst til sölu á Siglufirði. Fyrirtækið er rótgróið vélaverkstæði og bátasmiðja. Fyrirtækið á sér langa sögu og traust viðskiptasambönd og er einkstaklega vel tækjum búið, m.a. bátaskýli og gámalyftara. Rekstrartekjur hafa aukist jafnt og þétt síðustu árin og umsvif aukist.
Til greina kemur að selja annaðhvort reksturinn, með eða án leigusamnings um fasteignirnar eða félagið í heild sinni.
Fyrirspurnir og upplýsingar á netfanginu salaje@simnet.is.

