Jólapóstur Dalvíkurskóla í 85. sinn
Jólapóstur Dalvíkurskóla og jólasveinana fer fram í 85. skipti í ár en þann 23. desember 2025 verður tekið á móti jólapósti í Dalvíkurskóla frá kl. 13:00-16:00 þar sem hann verður flokkaður af nemendum 7. bekkjar og settur í jólasveinapokana. Starfsmenn skólans koma einnig að móttöku og flokkun póstsins í sjálfboðavinnu. Verð er 150 kr. fyrir kortið og 500 kr. fyrir pakkann og allur ágóði rennur til bókakaupa á skólabókasafn Dalvíkurskóla.
Jólasveinum hefur fjölgað jafnt og þétt og umfangið aukist. Nú bera jólasveinarnir póst út í Svarfaðardal, Skíðadal og á Dalvík.
Á aðfangadagsmorgun leggja sveinarnir af stað með póstinn, rjóðir og líflegir. Raða sér niður á götur og í sveit og berja að dyrum. Margir íbúar tala um að þetta sé ómissandi liður í undirbúningi jólanna. Að bíða spenntur eftir sveinunum og taka á móti þeim með bros á vör og gjarnan gauka að þeim smá góðgæti.
