dalvíkurbyggðFjallabyggð

KF/Dalvík mætti Snæfellsnesi í loka leik mótsins

KF/Dalvík í 4. flokki karla lék við Snæfellsnes í leik um 5.-6. sætið á Reycup. Leikurinn var jafn og spennandi og komst Snæfellsnes yfir í fyrri hálfleik og var 0-1 í hálfleik. Fljótlega í síðari hálfleik missti KF/Dalvík leikmann útaf með rautt spjald og voru þeir nánast allan síðari hálfleik einum færri. Rétt fyrir lok leiksins jafnaði KF/Dalvík og voru lokatölur leiksins því 1-1.  Liðin deila því 5.-6.  sæti mótsins en ekki var framlengt eða farið í vítakeppni.

Flottur árangur hjá strákunum á mótinu.