dalvíkurbyggðFjallabyggð

KF/Dalvík spilar úrslitaleik á Reycup í 3. flokki karla

KF/Dalvík mætti Val í morgun um leik um 1.-4. sætið í keppni B-liða á Reycup í 3. flokki. KF/Dalvík gerði sér lítið fyrir og unnu Val 3-0 með frábærum leik og baráttu. KF/Dalvík leikur því úrslitaleik á móti Aftureldingu kl. 17:00 í dag. Leikurinn fer fram í Safamýrinni, gamla Fram svæðinu.

Frábært mót hjá 3. flokki karla hjá KF/Dalvík en mótinu lýkur í dag.

Stelpurnar í 3. flokki leika svo um 3.-4. sætið í dag gegn Val, og fer leikurinn fram í Laugardalnum nærri TBR kl. 14:00. Einnig mjög gott mót hjá stelpunum í KF/Dalvík.