KF/Dalvík stelpurnar tóku bikarinn á Reycup
KF/Dalvík í 4. flokki kvenna lék til úrslita á móti Tindastól á Reycup. Leikurinn var jafn og spennandi og komst KF/Dalvík yfir seint í fyrri hálfleik með góðu marki, þegar þær komust í gegnum vörn Tindastóls.
1-0 var í hálfleik. Lítið var um færi mestallan síðari hálfleik, en leikurinn opnaðist aðeins síðustu mínúturnar en fleiri mörk komu ekki.
KF/Dalvík vann því bikarinn og fögnuðu vel eftir leik. Full stúka var af forráðamönnum liðanna sem hvöttur þær vel áfram í leiknum.
Frábær árangur hjá liðinu á mótinu.

