Knattspyrnudeild Dalvíkur óskar eftir sjálfboðaliðum
Knattspyrnudeild Dalvíkur óskar eftir sjálfboðaliðum næstu daga við að leggja niður snjóbræðslulagnir á Dalvíkurvöll. Aðstoða þarf pípara og aðra verkamenn sem eru á svæðinu við það að draga út hitaveitulagnir og koma fyrir á rétta staði, smella saman festingum og öðrum tilfallandi verkefnum. Greint er frá þessu á dalviksport.is.
Dagskráin er þessi:
Mið 26. júní 16:00 – 19:00
Fim 27. júní 16:00 – 19:00
Fös 28. júní 16:00 – 18:00
Píparar eru að störfum allan daginn á Dalvíkurvelli um þessar mundir og ef fólk vill aðstoða á öðrum tíma heldur en auglýst er hér að ofan er öll aðstoð vel þegin.
Ef fólk getur ekki lofað sér nema part úr degi – þá er eins og fyrr segir öll aðstoð vel þegin.