dalvíkurbyggð

Könnun meðal íbúa Dalvíkurbyggðar um hlutverk Gamla skóla

Könnun stendur nú yfir meðal íbúa Dalvíkurbyggðar vegna verkefnisins Nýtt hlutverk fyrir Gamla skóla. Íbúar 18 ára og eldri með lögheimili í Dalvíkurbyggð geta tekið þátt í könnuninni. Frá þessu er greint á vef Dalvíkurbyggðar.

Könnuninni er svarað í íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Könnunin verður opin til og með 7. júní og niðurstöður kynntar 10. júní.  Velja skal einn lið könnunarinnar. Einnig verður hægt að koma á framfæri skriflegri athugasemd, eða öðrum kostum, á irish@dalvikurbyggd.is.

Valmöguleikar í könnuninni eru eftirfarandi:

  • Ég vil að allur Gamli skóli verði endurbyggður. Nýi hlutinn fyrir Friðlandsstofu, Byggðasafnið og fuglasýninguna en elsti hlutinn til útleigu eða annarra verkefna sveitarfélagsins. Hvoll verði seldur. (Kostnaður við endurbyggingu að lágmarki 200 milljónir króna).
  • Ég vil að nýi hluti Gamla skóla verði endurbyggður fyrir Friðlandsstofu, Byggðasafnið og fuglasýninguna. Gamli hlutinn verði rifinn eða seldur. Hvoll verði seldur. (Kostnaður við endurbyggingu um 155 milljónir króna).
  • Ég vil að Gamli skóli verði seldur og að byggt verði nýtt hús fyrir starfsemi Friðlandsstofu, Byggðasafnsins og fuglasýninguna. Nýbyggingin verði nálægt núverandi safnastarfsemi. Hvoll verði seldur. (Kostnaður við nýbyggingu að lágmarki 200 miljónir króna)
  • Ég vil að Byggðasafnið verði áfram í Hvoli, Friðlandsstofu verði fundinn staður nálægt núverandi safnastarfsemi og að Gamli skóli verði seldur. (ATH – sé þessi kostur valinn fellur öndvegisstyrkur úr Safnasjóði kr. 10 milljónir niður).

Texti: Dalvíkurbyggð.is

 

Könnun um framtíðarhlutverk ,,Gamla skóla