Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja lætur af störfum
Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja hf. lætur af störfum um næstu mánaðamót. Hann gerði stjórn félagsins grein fyrir þessari ákvörðun sinni fyrr í mánuðinum.
Upphaf starfsferilsins má rekja til ársins 1983, þegar bræðurnir Kristján og Þorsteinn Vilhelmssynir og frændi þeirra Þorsteinn Már Baldvinsson keyptu nær allt hlutafé í Samherja hf. í Grindavík, sem hafði gert út togarann Guðstein GK 140 og fluttu þeir starfsemina norður til Akureyrar.
Samherji er í dag eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins með rekstur í útgerð, fiskeldi og sölu sjávarafurða. Starfsmenn eru um átta hundruð.
Kristján hefur alla tíð haft einlægan áhuga á sjávarútvegi. Faðir hans, Vilhelm Þorsteinsson var framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa í nærri þrjátíu ár og áður skipstjóri. Kristján var aðeins fimm ára gamall þegar hann fór með föður sínum í sína fyrstu veiðiferð og fyrsta launaseðilinn fékk hann í kringum tíu ára aldurinn fyrir að hnýta spyrðubönd fyrir ÚA.
Nánar má lesa á vef Samherja.is
