Kvennalið Dalvíkur/Reynis heimsótti KÞ
Meistaraflokkur kvenna hjá Dalvík/Reyni heimsótti KÞ í Laugardalnum í dag. KÞ er nýstofnað venslafélag Þróttar og eru þar yngri leikmenn Þróttar sem fá reynslu í 2. deildinni. KÞ hafði aðeins leikið 4 leiki fyrir þennan leik og gengið illa að skora, liðið var aðeins búið að skora 4 mörk og fá á sig 14 og var í neðri hluta deildarinnar.
D/R stelpurnar voru með tvo sigurleiki í röð og höfðu spilað 7 leiki í deildinni og skorað 18 mörk.
Dalvík/Reynir byrjaði fyrri hálfleik vel og skoruðu á 9. mínútu þegar Arna Kristinsdóttir skoraði sitt þriðja mark í deildinni.
D/R leiddi 0-1 í hálfleik. Það dróg svo til tíðinda á 67. mínútu þegar markmaður Dalvíkur fékk beint rautt spjald og lék liðið einum færri eftir það. Bæði lið gerðu tvöfalda skiptingu eftir rauða spjaldið.
KÞ sótti meira undir lok leiksins og kom inn jöfnunarmarki á 86. mínútu. Lokatölur urðu 1-1 í þessum leik.
D/R er þá í 5. sæti eftir 8 leiki á Íslandsmótinu. Nokkur lið hafa aðeins leikið 5-7 leiki og getur því röðin í töflunni breyst.
