dalvíkurbyggð

Kvennalið Dalvíkur/Reynis með góðan sigur á útivelli

Dalvík/Reynir heimsótti lið Smára til Reykjavíkur í dag og fór leikurinn fram í Egilshöll og var þetta 11. umferð í 2. deild kvenna.

D/R byrjaði fyrri hálfleikinn vel og var Hafrún Mist Guðmundsdóttir í miklu stuði. Hún skoraði þrennu í fyrri hálfleik. Staðan var orðin 0-2 eftir tíu mínútur eftir sterka byrjun. Staðan var 0-3 í hálfleik.

Smári minnkaði muninn á 50. mínútu og var staðan því orðin 1-3.

Þremur mínútum síðar skoraði Erika Rakel Melsen Egilsdóttir fyrir D/R og var staðan orðin 1-4.

Erika skoraði aftur á 60. mínútu og kom hún D/R í 1-5 með sínu öðru marki.

Lokatölur 1-5 og annar sigur D/R í röð í deildinni. Liðið er núna í 7. sæti með 11 stig.