dalvíkurbyggð

Kynningarfundur í Bergi vegna tillögu á aðal- og deiliskipulagsbreytingum

Kynningarfundur verður haldinn í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík þriðjudaginn 6. ágúst kl. 20.00. Á fundinum verða skipulagshöfundarnir þeir Árni Ólafsson og Ágúst Hafsteinsson og munu þeir kynna tillögu á aðal- og deiliskipulagsbreytingum íbúðasvæðis í Hóla- og Túnahverfi.

Meðfylgjandi eru gögn sem hægt er að kynna sér vel fyrir fundinn.

Breytingartillaga á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfis.

Breytingartillaga á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar – stækkun íbúðasvæðis.

Íbúar Dalvíkurbyggðar eru eindregið hvattir til að mæta á fundinn.

Heimild: dalvikurbyggd.is.