Laus staða tónlistarkennara við Tónlistarskólann á Tröllaskaga
Tónlistarskólinn á Tröllaskaga óskar eftir tónlistarkennara í 70% starf frá 1. ágúst 2019. Meirihluti kennslunnar fer fram á skólatíma grunnskólanemenda. Umsóknarfrestur: til 20. júlí 2019.
TÁT er með útibú í þremur byggðarkjörnum, Siglufirði, Ólafsfirði og í Dalvíkurbyggð.
Hæfniskröfur tónmenntakennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi.
Umsóknir eða frekari upplýsingar berist á netfangið maggi@tat.is eða í síma 8982516.