Leggja til breytingar í Árskógarskóla
Fræðsluráð Dalvíkurbyggðar hefur lagt til Árskógarskóli verði fyrir nemendur frá leikskólaaldri og upp í 6. bekk næsta haust samkvæmt tillögum stjórnenda eftir að hafa unnið úr foreldrakönnun sem gerð var í Árskógarskóla.
Hugað verði að því að 5. og 6. bekkur fari í Dalvíkurskóla haustið 2026.
Fræðsluráð Dalvíkurbyggðar leggur áherslu á aukna samkennslu fræðslustofnanna Dalvíkurbyggðar og óskar eftir tillögum þess efnis frá stjórnendum.
Þetta kom fram á fundi ráðsins í morgun sem haldin var ásamt stjórnendum skólanna í Dalvíkurbyggð.
