dalvíkurbyggð

Leikfélag Dalvíkur sýnir Heilmikið Sokka sokk

Leikfélag Dalvíkur frumsýndi söngleikinn Heilmikið sokka sokk þann 3. apríl sl. Leikritið er eftir Katrínu Sif Ingvarsdóttur og Ösp Eldjárn og öll tónlist og textar einnig eftir þær.  Miðaverð er aðeins 1500 kr.

Sýningin gerist í „Landi hina stöku sokka“ þar sem sokkar eiga það til að hverfa úr þvottavélum heimilanna og enda stakir.

Fylgst er með sokkunum Jamma og Sillu og hvernig þeim reiðir af eftir að þau enda þarna saman og þurfa að takast á við hluti eins og að vera flokkaðir gegn sínum vilja, einræðisherra með flokkunaráráttu og sokka sem hafa sætt sig við ástandið. Þessi sýning er fyrir fólk á öllum aldri og er miðasala hjá Leikfélagi Dalvíkur í síma 868-9706 á milli 16:00 – 21:00.

Næstu sýningar:

Fös. 5. apríl kl. 17.30
Lau. 7. apríl kl. 14.00
Lau. 7. apríl kl. 16.00

Image may contain: text