dalvíkurbyggð

Listasmiðja fyrir börn og unglinga 23. ágúst í Víkurröst

Í tengslum við verkefnið Fegurð Fjarða er boðið til ókeypis listasmiðju fyrir börn og unglinga í dag, laugardaginn 23. ágúst frá kl. 13:00 – 15:00 í Víkurröst á Dalvík.
Þar munu Listakonurnar Jonna og Bilda hanna og skreyta útsýnisstóla úr endurunnu efnivið með þátttakendum.

Fegurð fjarða er samheiti yfir listsýningar, fræðslusýningar og margs konar viðburði sem verða á átta stöðum við Eyjafjörð, Siglufjörð og Ólafsfjörð sumarið 2025. Þetta er margþætt verkefni sem unnið verður í samstarfi við heimamenn og er markmiðið að vekja fólk til umhugsunar um ábyrgð og hlutverk hvers og eins í umgengni við haf og strönd.