Lögreglan lokaði tveimur veitingahúsum á Norðurlandi
Lögreglan á Norðurlandi eystra lokaði tveimur veitingahúsum í gærkvöldi, annarsvegar vegna útrunnins rekstrarleyfis en annað veitingahúsið gat ekki framvísað gildu rekstrarleyfi og hinu veitingahúsinu var lokað vegna brots á sóttvarnarlögum. Samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar skulu gestir hafa yfirgefið veitingahús eigi síðar en kl. 23:00. Á þessu tiltekna veitingahúsi var enn verið að þjóna til borðs og voru um 50 gestir í húsinu að borða um kl. 23:15.
Þónokkuð var af fólki á Akureyri og sinnti lögreglan einnig ölvunar- og hávaðaútköllum fram undir morgun. Í einu útkallinu fannst lítilræði af fíkniefnum sem voru haldlögð.