Lokatölur úr prófkjöri XD Norðausturkjördæmi
Lokatölur úr prófkjöri XD í Norðausturkjördæmi lágu fyrir seint í nótt. Greidd atkvæði voru 1.570. Auðir og ógildir 71. Alls 1.499 gild atkvæði. Njáll Trausti Friðbertsson hlaut flest atkvæði í 1. sæti og er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.
Lokatölur:
- Njáll Trausti Friðbertsson með 816 atkvæði í 1. sæti
- Berglind Ósk Guðmundsdóttir með 708 atkvæði í 1.-2. sæti
- Gauti Jóhannesson með 780 atkvæði í 1.-3. sæti
- Berglind Harpa Svavarsdóttir með 919 atkvæði í 1.-4. sæti
- Ragnar Sigurðsson með 854 atkvæði í 1.-5. sæti
