dalvíkurbyggð

Miðgarðakirkja í Grímsey vígð

Miðgarðakirkja í Grímsey verður vígð sunnudaginn 10. ágúst. Biskup Íslands sér um vígsluna ásamt fleirum.

Kirkjuklukkurnar verða helgaðar og afhentar, en þær eru gjöf frá söfnuði Hallgrímskirkju. Að þeirri helgun lokinni verður samhringt klukkunum í Miðgarðakirkju og Hallgrímskirkju og gengið til vígsluathafnar.

Þann 21. september næstkomandi verða liðin fjögur ár frá hinum skelfilega bruna þegar Miðgarðakirkja brann til ösku. Heimamenn hófust strax handa við að byggja nýja kirkju og fundu fyrir miklum velvilja þjóðarinnar í sinn garð.

Síðustu misseri hafa verið haldnar helgistundir í kirkjunni, ófullbúinni, en nú er loksins komið að því að hún verði vígð og Grímseyingar eiga að nýju Miðgarðakirkju.