Myndlistarsýningin Sprettir opnar í Bergi 30. ágúst
Listakonurnar Hrönn Björnsdóttir og Jóhanna V. Þórhallsdóttir sýna málverk og pappírsverk undir sýningarheitinu Sprettir í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Opnun sýningarinnar verður laugardaginn 30. ágúst kl. 14:00 – 16:00.
Nafnið Sprettir vísar í mismunandi tímabil á ferli Hrannar og Jóhönnu. Tímabilin endurspeglast í ólíkum innri sprettum, krafti og takti . Sjá má ný verk í bland við eldri.
Þetta er þriðja samsýning listkvennanna, en báðar eiga að baki margar einkasýningar ásamt fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis.
