Niðurfelling leikskólagjalda á meðan á verkfalli stendur
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt tillögu forseta sveitarstjórnar að fella niður leikskólagjöld og fæðisgjöld vegna skerðingar á vistun barna í verkfalli BSRB og aðildarfélaga þeirra.
Leiðrétting á gjöldum mun verða reiknuð út og gerð upp með fyrsta greiðsluseðli sem gefinn verður út eftir að verkfalli lýkur.
