dalvíkurbyggð

Nú er runninn upp kjördagur – Benedikt Snær hjá Sjálfstæðisflokkinum í Dalvíkurbyggð skrifar

Nú er runninn upp kjördagur. Við sem höfum verið í hringiðju kosningabaráttunnar höfum svo sannarlega fundið fyrir þeim meðbyr sem er með okkur í Sjálfstæðisflokknum.
Okkur hefur alls staðar verið mjög vel tekið. Hvort sem það er í fyrirtækjaheimsóknum, heimsóknum til félaga, viðburðum, eða þegar við höfum verið að banka uppá og taka stöðuna á íbúum. Við sem skipum lista Sjálfstæðisflokksins erum fjölbreyttur hópur með ólíkan bakgrunn, sem er kostur í því fjölmenningarsamfélagi sem við búum í. Hér á öllum að líða vel.
Þegar ég fór af stað í kosningabaráttuna óraði mig ekki fyrir þeim meðbyr sem við myndum hafa. Ég er fyrst og fremst hrærður yfir því góða fólki sem er með mér á lista. Tíminn sem þau hafa lagt í þessa kosningabaráttu er ómetanlegur. Ég segi fullur sjálfstrausts að það er alveg sama hvað kemur uppúr kössunum, við getum svo sannarlega verið stolt.
Við höfum undanfarnar vikur sýnt mikinn metnað í þeirri vinnu sem við höfum lagt í kosningabaráttuna, hvort sem það er með upplýsingum um stöðu mála eða í fundi og upplýsingagjöf, og munum við taka þann lærdóm sem við höfum haft af samskiptum við íbúa með okkur inn í vinnu í sveitarstjórn. Ekki síður, megum við ekki gleyma því góða fólki sem býr í þessu samfélagi. Eitt er ljóst að ég er fullur hugmynda og skýrra skilaboða og veit hverjar áskoranirnar eru næstu 4 árin.
Við höfum sýnt hversu mikið okkur langar sem flest að sitja í sveitarstjórn, og það er undir þér komið að gefa okkur það umboð næstu 4 árin til góðra verka.
Þessar kosningar snúast ekki um stór átakamál, heldur hverjum þú treystir best til að leiða sveitarfélagið.
Settu X við D í kjörklefanum og tryggðu Dalvíkurbyggð gleðilega framtíð næstu árin.
Benedikt Snær.