Ný íbúðabyggð á Árskógssandi
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kynnir drög tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.
Breytingin felst í því að íbúðarsvæði 706-ÍB er stækkað um 3,7 ha fyrir nýja íbúðabyggð. Jafnframt eru þéttbýlismörk útvíkkuð þannig að þau nái yfir núverandi lóðir sunnan og austan Aðalbrautar meðfram bökkum Þorvaldsdalsár.
Meginmarkmið deiliskipulagstillögunnar er uppbygging íbúðarhúsnæðis á Árskógssandi. Íbúðabyggðinni er skipt í þrjú svæði fyrir blandaða byggð, stór einbýlishús og smáíbúðabyggð.
