Nýr hjólabrettavöllur tekinn í notkun á Dalvík
Nýr hlaupahjóla- og hjólabrettavöllur hefur verið tekinn formlega í notkun á Dalvík. Völlurinn er staðsettur milli Víkurrastar og Dalvíkurskóla. Eiríkur Helgason hannaði og smíðaði völlinn, en hann er eigandi af Braggaparkinu á Akureyri og einn fremsti hjólabrettamaður landsins. Völlurinn er virkilega vel heppnaður og fyrsta flokks. Svæðið er mikið notað á skólatíma og eftir að skóla lýkur.
Hópur af hjólabretta- og hlaupahjólafólki kom saman við þetta tilefni til að leika lystir sínar og voru sumir að stíga sín fyrstu skref.
