dalvíkurbyggð

Nýr markmaður til Dalvíkur/Reynis

Dalvík/Reynir hefur gert samning við Auðunn Inga Valtýsson, en hann er fæddur árið 2002. Hann gerir tveggja ára samning við félagið. Auðunn kemur í markið í stað Franko Lalic.
Auðunn lék upp yngri flokkana hjá Þór á Akureyri en kom sem lánsmaður til Dalvíkur/Reynis árið 2023 og lék 21 leik fyrir félagið í deildinni og bikarkeppnum.