dalvíkurbyggð

Nýtt korta- og aðgangskerfi í Íþróttamiðstöðinni á Dalvík

Íþróttamiðstöðin á Dalvík hefur tekið upp nýtt korta- og aðgangskerfi.
Nú geta gestir hlaðið kortum sínum niður í veskið í símanum. Til að hlaða kortinu niður fara notendur inn á vefinn kort.dalvikurbyggd.is í símanum sínum og skrá sig þar inn með rafrænum skilríkjum. Þegar innskráningu er lokið er smellt á kallinn efst í hægra horninu og síðan smellt á Kortin mín.

Þá sér notandinn yfirlit yfir öll gild kort sem hann á og getur smellt á „Sækja kort í síma“ og hlaðið kortinu þannig niður í veskið í símanum.
Einnig er hægt að kaupa ný kort í gegnum vefinn kort.dalvikurbyggd.is.