Opið hús í Krílakoti í Dalvíkurbyggð
Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur miðvikudaginn 6. febrúar, með opnu húsi í leikskólanum Krílakoti í Dalvíkurbyggð frá kl. 13:50-15:30.
Allir velkomnir sem vilja koma og skoða skólann og þiggja veitingar í boði Foreldrafélags Krílakots.
Dagur leikskólans er haldinn í tólfta skipti í ár en 6. febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.