Óskað eftir tilnefningum til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar
Tilnefningar til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar standa yfir er hægt að tilnefna til og með 30. nóvember 2025.
Íþrótta- og æskulýðsráð hefur síðan árið 1996 veitt árlega viðurkenningu til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar að fengnum tilnefningum íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð. Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar getur sá orðið sem stundar íþróttir með félagi sem starfar í Dalvíkurbyggð, eða hefur lögheimili í Dalvíkurbyggð en stundar íþrótt sína utan Dalvíkurbyggðar. Viðkomandi þarf að hafa náð 15 ára aldri á því ári sem tilnefnt er fyrir.
Kjörinu er svo lýst á hátíðarfundi íþrótta- og æskulýðsráðs í janúar 2026.
Sá sem oftast hefur hlotið kjörið er Björgvin Björgvinsson fyrir skíðamennsku, alls 11 sinnum
- 1996 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 1997 – Ómar Freyr Sævarsson, frjálsar íþróttir
- 1998 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 1999 – Snorri Páll Guðbjörnsson, frjálsar íþróttir
- 2000 – Kristinn Ingi Valsson, skíði
- 2001 – Auður Aðalbjarnardóttir, frjálsar íþróttir
- 2002 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 2003 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 2004 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 2005 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 2006 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 2007 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 2008 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 2009 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 2010 – Björgvin Björgvinsson, skíði
- 2011 – Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, golf
- 2012 – Jakob Helgi Bjarnason, skíði
- 2013 – Anna Kristín Friðriksdóttir, hestaíþróttir
- 2014 – Ólöf María Einarsdóttir, golf
- 2015 – Ólöf María Einarsdóttir, golf
- 2016 – Arnór Snær Guðmundsson, golf
- 2017 – Svavar Örn Hreiðarsson, hestaíþróttir
- 2018 – Amanda Bjarnadóttir, Golf
- 2019 – Ingvi Örn Friðriksson, Kraftlyftingar
- 2020 – Sveinn Margeir Hauksson, Knattspyrna
- 2021 – Rúnar Júlíus Gunnarsson, Hestaíþróttir
- 2022 – Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir, Blak
- 2023 – Þröstur Mikael Jónasson, Knattspyrna
- 2024 – Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir, Blak
