Ráðinn öryggisstjóri Samherja
Gauti Þór Grétarsson hefur verið ráðinn í starf öryggisstjóra Samherja. Hann segir greinilegt að Samherji standi framarlega á sviði öryggis- og vinnuverndarmála, enda leggi félagið metnað sinn í að tryggja öryggi starfsmanna, efla heilbrigði þeirra og fyrirbyggja fjarveru úr vinnu vegna slysa eða annarra heilsufarsvandamála.
Gauti Þór hefur undanfarin ár starfað sem verkefnastjóri öryggismála og framkvæmda hjá Norðurorku, þar áður var hann slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður. Gauti Þór tekur við starfinu af Jóhanni Sævarssyni sem var öryggisstjóri Samherja í níu ár.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja.
