Rafhjólaferð með Ferðafélagi Svarfdæla í Barkárdal
Ferðafélag Svarfdæla stóð fyrir rafhjólaferð í Baugasel í Barkárdal um verslunarmannahelgina. Góð mæting var en 22 tóku þátt í þessari skemmtilegu hjólaferð. Ferðin hófst við Bug í Hörgárdal. Hjólað var eftir jeppaslóða upp á Þúfnavallahálsinn. Það gekk greiðlega að hjóla inn dalinn en það eru tæpir 7 km fram að Baugaseli.
Farið var yfir brú á Barkánni. Brúin er sögð fyrir allt að 2 tonna þunga. Barkáin er oft fremur vatnsmikil og barkarlituð á hlýjum sumardögum og því gott fyrir ferðafólk að hún sé brúuð.
Myndir koma frá Ferðafélagi Svarfdæla.

