dalvíkurbyggð

Sæplast hefur gefið skólatöskur og pennaveski í 10 ár í Dalvíkurbyggð

Í lok sumars hefur skapast skemmtileg hefð þar sem Sæplast tekur á móti þeim börnum í Dalvíkurbyggð sem hefja nám í 1. bekk grunnskóla.  Í yfir 10 ár hefur fyrirtækið Sæplast gefið öllum nýnemum í Dalvíkurskóla og Árskógsskóla glænýjar skólatöskur og pennaveski. Verkefnið er unnið í samvinnu við skólastjórnendur í Dalvíkurbyggð.
Sæplast hefur þótt mikilvægt að styðja við þetta stóra skref í lífi barnanna og allir séu klárir með réttan útbúnað. Með því að útvega börnum skólatöskur og pennaveski léttir Sæplast um leið undir með foreldrum, enda fylgir skólabyrjun oft talsverður kostnaður.
Sæplast eru stoltir af því að geta lagt sitt af mörkum í nærumhverfinu.