AkureyriNorðurland

Samfélagsleg áhrif millilandaflugs á Norðurland og Austurland

Markaðsstofa Norðurlands boðar til rafræns fundar, í samstarfi við SSNE og Austurbrú, um samfélagsleg áhrif millilandaflugs um Akureyrarflugvöll.

Þóroddur Bjarnason hefur lokið viðamikilli rannsókn á áhrifum millilandaflugs um Akureyrarflugvöll á samfélag og atvinnulíf. Á fundinum verður farið yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar og í kjölfarið gefst þátttakendum tækifæri til umræðu og spurninga.

Verkefnið hlaut stuðning frá Sóknaráætlun Norðurlands Eystra og Austurlands.

Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands er fundarstjóri.

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 8. maí frá kl. 10:00-11:30.

Skráning: