Sex teymi klára Startup Storm og 3D lausnir unnu hálfa milljón
Sex nýsköpunarteymi á Norðurlandi kláruðu nýverið viðskiptahraðalinn Startup Storm sem Norðanátt, hreyfiafl nýsköpunar á Norðurlandi, stóð að.
Startup Stormur er sjö vikna viðskiptahraðall með áherslu á sjálfbærni og græn verkefni, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið.
Nýsköpunarteymi í Startup Storm 2023:
Ísponica – Amber Monroe : Ræktun grænmetis og kryddjurta með aquaponics (afrennsli fiskeldis) lóðréttri búskap. Markmiðið er að rækta mat innandyra, allt árið um kring með áherslu á sjálfbæra framleiðslu.
Kaffibrennsla Skagafjarðar – Vala Stefánsdóttir : Kaffibrennsla Skagafjarðar, nýbrennt og ferskara kaffi
Rækta microfarm – Serena Simona Pedrana og Giacomo Montanelli: Minnkum kolefnisspor og drögum úr innflutningi og matarsóun. Rækta Microfarm er umhverfisvæn framleiðsla á grænsprettum, sælkerasveppum og hampblómum.
Sigló Sea – Laken – Louise Hives : Sjálfbær ræktun/uppskera á þangi og kræklingum og samfélagsleg þróun ferðaþjónustu. e. Sustainable sea seaweed farming/harvesting and mussel farming and community based tourism development.
Vallhumall – Elínborg Ásgeirsdóttir : Gamalkunn íslensk lækningajurt fær nýtt hlutverk sem bragðefni í matvælaframleiðslu.
3D Lausnir – Jón Þór Sigurðsson og Arnar Hansen : Hringrásasteypa og þrívíddarprentun.
Þetta er í þriðja sinn sem Norðanátt stendur fyrir viðskiptahraðli fyrir frumkvöðla sem vinna að grænum verkefnum á Norðurlandi. Startup stormur hófst 4. október og hafa þátttakendur síðastliðnar sjö vikur fengið fræðslu, setið vinnustofur og myndað tengingar við reynslumikla aðila úr atvinnulífinu á svokölluðum mentorafundum.
Lokaviðburður var haldinn með pompi og prakt fimmtudaginn 16. nóvember síðastliðinn á Flugsafni Íslands. Nýsköpunarteymin stigu á stokk og kynntu verkefni sín fyrir fullum sal boðsgesta en um 80 manns sóttu viðburðinn og hlýddu á þeirra kraftmiklu kynningar.
Á lokaviðburðinum var einnig fjölbreytt dagskrá. Vilhjálmur Bergmann Bragason, leikari og vandræðaskáld var kynnir kvöldsins og Albertína Fr. , Ottó Elíasson og Katrín Guðjónsdóttir tóku umræðuna um nýsköpun á Norðurlandi í pallborði. Sigurjón og Ragnheiður frá englafjárfestingafélaginu Nordic Ignite fræddu gesti um englafjárfestingar og frá KLAK komu Magnús og Jenna og kynntu Gulleggið, stærstu nýsköpunarkeppni landsins.





Myndir og texti: Aðsent fréttatilkynning.
