dalvíkurbyggð

Sjón gleraugnaverslun verður á Dalvík miðvikudaginn 7. maí

Kæru Dalvíkingar.

Við hjá Sjón gleraugnaverslun erum á leiðinni til Dalvíkur og verðum þar miðvikudaginn 7.maí. Við verðum staðsett á Hótel Dalvík.

Hægt verður að koma í sjónmælingu og við verðum með yfir 1000 umgjörðir með okkur fyrir þá sem vantar að versla ný gleraugu.

Mikilvægt er að panta tíma í sjónmælingu í gegnum síma 6118809 eða 5118809.

Við viljum bjóða öllum bæjarbúum að koma ef einhverja þjónustu þarfnast á gleraugunum.

Það verða að sjálfsögðu sérstök tilboð fyrir viðskiptavini.

Sjáumst miðvikudaginn 7.maí!