dalvíkurbyggð

Skíðasvæðið á Dalvík opið í dag

Skíðasvæðið á Dalvík opnar í dag fyrir almenning og er frítt í fjallið í tilefni dagsins. Aðeins neðri lyftan er opin fyrir almenning í dag, ennþá vantar snjó til að opna efri lyftuna.

Búið er að framleiða snjó og er færið gott að sögn umsjónarmanna skíðasvæðisins.

Opið er frá 10-16 í dag, annan í jólum.