Skíðasvæðið á Dalvík opnar fyrir almenning
Skíðasvæðið á Dalvík opnar fyrir almenning laugardaginn 20. desember frá kl. 12-17 og er frítt inn þann daginn. Á svæðinu er aðeins framleiddur snjór og þunnt lag. Smá jarðvegur er í snjónum efst og brekkurnar eru mjóar. Opið verður í neðri Lyftubrekku og Barnabrekku. Einnig verður opið á sunnudag og mánudag og stefnt er á opnun einnig á annan í jólum.
Opnun næstu daga:
Sunnudagur 21. des 10:00 – 16:00
Mánudagur 22. des 14:30-19:00
