Skrifstofurými til leigu í Ráðhúsi Dalvíkur
Dalvíkurbyggð hefur auglýst til leigu skrifstofu- og þjónusturými á 2. hæð Ráðhúss Dalvíkur. Rýmið sem um ræðir er um 10 fm og því fylgir afnot af sameign á gangi, snyrtingu og ræstikompu. Rýmið getur verið laust frá 15. desember 2025 eða eftir samkomulagi. Lyfta er í húsinu.
Fjölbreytt starfsemi er í Ráðhúsinu en þar eru m.a. Skrifstofur Dalvíkurbyggðar og útibú Landsbankans.
Umsóknarfrestur er til og með 8. desember 2025.
