dalvíkurbyggð

Slysavarnardeild Dalvík gefur sjúkratösku fyrir skautasvellið

Slysavarnadeildin Dalvík mun á morgun, laugardaginn 7. febrúar kl. 15:00 gefa sjúkratösku fyrir aðstöðuna á Skautasvellinu við Stórhólstjörn. Þau ætla að bjóða uppá kakó og meðlæti.
Júlíus Gunnar Bóasson og Arnór Reyr Rúnarsson settu upp lýsingu í gær á skautasvellið. Kastarar komu að láni frá Skíðasvæði Dalvíkur og Vélvirki ehf. útbjó festingar.
Steypustöðin Dalvík ætlar að ryðja snjóinn af Stórhólstjörninni.
Tvö hokkí mörk koma að láni frá Íþróttamiðstöðin á Dalvík.
Minnt er á að nota hjálma og ganga vel um svæðið. Frábært þetta samfélagsverkefni.