Starfsdagur í leik- og grunnskólum Dalvíkurbyggðar á mánudag
Í samráði við fræðslu- og sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar hefur verið ákveðið að vera með starfsdag í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins mánudaginn 16. mars. Þá mun starfsfólk skólanna undirbúa kennslu næstu vikna og gera ráðstafanir í samræmi við fyrirmæli almannavarna.
Starfsemin verður með breyttu sniði frá og með 17. mars og eru foreldrar beðnir um að fylgjast vel með upplýsingum frá skólunum sem sendar verða út á mánudag næstkomandi.