Strandarmótið í Dalvíkurbyggð á laugardaginn
Strandarmót VÍS og Jako verður haldið laugardaginn 20. júlí á Dalvíkurvelli. Mótið er fyrir drengi og stúlkur í 8. og 7. flokki.
Mótsfyrirkomulag verður þannig að 8. flokkur keppir fyrrihluta dags (3-4 manna bolti) og 7. flokkur seinnihluta dags (5 manna bolti).
Áætlað er að hvert lið spili 5-6 leiki, 10 mínútna langa.
Mótið hefst kl. 09:00 með leikjum hjá 8.flokki. 8.flokkur spilar til 12:00 þá fá þau grillaða pylsu, mótsgjöf og verðlaunapening. 7. flokkur hefur svo leik 12:20, reiknað er með því að það mót standi til 15:40, eftir síðasta leik hjá hverju liði þá fá þau einnig grillaða pylsu, mótsgjöf og verðlaunapening.
Leikjaplan 8. flokks má finna hér: https://docs.google.com/…/1lElveZbqIzK0s2EkU7mF…/edit…
Leikjaplan 7. flokks má finna hér:
Keppendur fá frítt í sund í Íþróttamiðstöðinni á Dalvík að lokinni keppni en sundlaugin verður opin til 19:00 þennan dag.